okkar ástríða
Sama á hvaða stigi verkefnið þitt er, við getum komið að því. Við byggjum nýjar lausnir frá grunni, tökum við kerfum sem þegar eru í rekstri, og styrkjum teymi sem þurfa aukinn mannskap.
mörkun
Vörumerki snýst um meira en merkið sjálft. Við mótum heildarútlitið og tóninn: merki sem virkar jafnt á skilti og í símanum, hvaða litir og letur eru notuð og hvenær, hvernig þú talar og hvernig myndefnið á að líta út. Þetta kemur allt saman í handbók sem bæði teymið þitt og þeir sem vinna fyrir þig geta stuðst við.
Með brand leiðarvísi gengur þú úr skugga um að allt efni sé samstillt í útliti og tryggir heildstæða mynd og traust kúnna.
hvað er í boði
- Moodboard og karakter vörumerkisins
- Sérhannað logo og/eða merki (e. emblem)
- Litapaletta og leiðarvísir um notkun
- Leturpörun og leiðarvísir, t.d. hvernig fyrirsögnum og meginmáli er hagað
- Hvernig myndefnið á að líta út: lýsing, sjónarhorn og fatnaður
- Leiðbeiningar fyrir prent, skilti, umbúðir og samfélagsmiðla
Við bjóðum mismunandi pakka í mörkun, allt frá einföldu lógói upp í fulla handbók, og sníðum þá að því sem hentar hverju verkefni.
- Mörkun
- Endurmörkun
- Vörumerkjastefna
- Lógóhönnun
- Sjónræn auðkenni
- Vörumerkjahandbók
- Tónn og rödd
- Listræn stýring
grafísk hönnun
Þegar vörumerkið er til þarf að nota það. Við hönnum efnið sem fer út í heiminn: auglýsingar, umbúðir, fatnað, myndskreytingar og allt sem birtist á samfélagsmiðlum.
Gott efni selur, en samræmt efni byggir vörumerki. Við hönnum hvert stykki þannig að það standi eitt og sér og styrki heildarmyndina um leið.
hvað er í boði
- Sérteiknaðar myndskreytingar
- Auglýsingar fyrir prent og skjái
- Auglýsingaskilti og útiauglýsingar
- Efni fyrir samfélagsmiðla
- Umbúðahönnun
- Fatnaður og varningur
- Plötuumslög
Við tökum að okkur stök verk eða reglulega hönnun, til dæmis mánaðarlegan pakka af efni fyrir samfélagsmiðla.
- Grafísk hönnun
- Myndskreytingar
- Auglýsingar
- Útiauglýsingar
- Umbúðir
- Fatnaður
- Plötuumslög
- Samfélagsmiðlar
UI/UX hönnun
Við hönnum viðmót sem fólk ræður við. Fyrst skoðum við hverjir notendurnir eru og hvað þeir þurfa, svo teiknum við flæðið og skjáina. Hönnunin er prófuð áður en farið er að forrita, ekki eftir á.
Sé hönnunin ekki ákveðin fyrirfram ræðst hún af þeim sem er næstur lyklaborðinu. Að klára hana fyrst þýðir minna endurtekið vesen og áætlun sem stenst.
hvað er í boði
- Notendaflæði og uppbygging síðunnar
- Skissur áður en útlitið er ákveðið
- Fullbúin hönnun í Figma, allar skjástærðir og allar stöður
- Component library sem forritararnir vinna eftir
- Prótótýpa til að prófa áður en smíði hefst
Umfangið er sniðið að verkefninu, hvort sem það er ein síða eða heilt kerfi.
- Vefhönnun
- UI/UX
- Hönnun fyrir snjalltæki
- Notendaprófanir
- Þarfagreining
- Áætlanagerð
forritun
Við smíðum framenda og bakenda, vefi og öpp, og tengjum þau við þau kerfi sem þurfa að vinna saman: greiðslur, áskriftir, vefumsjón og rafræn skilríki. Við tökum líka við kerfum sem eru þegar komin í rekstur.
Stærstur hluti kostnaðarins fellur til eftir opnun. Ef þitt fólk getur breytt efninu og næsti forritari lesið kóðann, þá áttu eign.
hvað er í boði
- Framendi sem virkar í öllum skjástærðum og uppfyllir aðgengiskröfur
- Bakendi, gagnagrunnur og API
- Vefumsjónarkerfi svo þú getir breytt efni án þess að hringja í okkur
- Tengingar: greiðslur, áskriftir, rafræn skilríki og önnur kerfi
- Hýsing, uppsetning og vöktun
- Afhending, eða áframhaldandi rekstur ef þarf
Við sníðum umfangið að verkefninu, hvort sem það er lítill vefur eða kerfi í fullri stærð.
- Framendi
- Bakendi
- Vefforritun
- iOS/Android
- Vefumsjónarkerfi
- Samþætting kerfa
- Sjálfvirknivæðing
- Gervigreind
- Stafræn stefnumótun
- SEO
rekstur og viðhald
Þegar hugbúnaður er kominn í loftið þarf einhver að halda utan um hann. Við sjáum um hýsingu, kóðann, tengingar við önnur kerfi og vöktun, svo þú þurfir ekki að hugsa um það.
Með fastri þjónustu veistu hver ber ábyrgð þegar eitthvað kemur upp, og hefur aðgang að forritara sem þekkir kerfið þitt nú þegar í stað þess að þurfa að setja einhvern inn í það.
hvað er í boði
- Hýsing á vefjum og hugbúnaði
- Varsla og umsjón kóðans
- Umsjón með tengingum við önnur kerfi
- Vöktun á uppitíma og viðbrögð þegar eitthvað fer niður
- Örugg varsla á lykilorðum og API lyklum
- Uppfærslur og öryggisbætur
Við bjóðum áskrift að forritunartímum á betra verði en stök verk. Tímana má nýta í hvað sem er: lagfæringar, breytingar eða nýja virkni.
- Rekstur
- Hýsing
- Viðhald
- Vöktun
- Uppitími
- Öryggi
- Samþætting
- Forritunartímar
nútímalegir vefir með tólum nútímans
Öll vörumerki að ofan eru í eign tilheyrandi félaga, notkun þeirra gefur ekki í skyn beint samstarf við Stockton.